Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun og fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð.
FRAN1AA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná markmiðum áfangans
framburði, áherslum og hljómfalli
flóknari atriðum málfræðinnar en áður
menningu frönskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál þegar talað er hægt og skýrt um hversdagsleg málefni
skilja lykilatriði í stuttum textum, leiðbeiningar og fyrirmæli
taka þátt í einföldum samræðum og bjarga sér við hversdagslegar aðstæður
tjá sig á einfaldan hátt um líðan sína, tilfinningar og viðhorf
halda uppi samræðum, t.d. spurt og svarað um hversdagslega hluti
skrifa stuttan texta, eins og t.d. persónuleg bréf, dagbók eða boðsbréf
beita flóknari málfræðireglum en áður
vinna sjálfstætt og með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina upplýsingar og draga ályktanir af því sem hann les eða heyrir
tjá sig um tiltekin málefni eða taka þátt í samræðum sem krefjast aukins orðaforða
tjá sig á viðeigandi hátt eftir aðstæðum, t.d. eftir því við hvern er talað og við hvaða aðstæður
koma ákveðnum atriðum á framfæri skriflega í mismunandi tegundum af textum