Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415370952.53

    Saga Evrópu frá endurreisn til byltinga
    SAGA2BE05
    56
    saga
    Saga Evrópu frá endurreisn til byltinga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn spannar tímabilið frá endurreisn fram til um 1900. Meðal þess sem verður farið yfir er endurreisn, siðaskipti, landafundir, vísindabylting, einveldi, upplýsingin, franska byltingin og eftirköst hennar. Efnið tengt Íslandi eftir því sem tilefni er til.
    SAGA2AA
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu atburðum nýaldarsögu sem vísað er til í samtímanum
    • helstu hugtökum, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum í nýaldarsögu
    • hlutverki og mikilvægi trúarbragða á nýöld
    • áhrifum kynhlutverka og stéttskiptingar á líf fólks á nýöld
    • meginstiklum í tækni-, vísinda- og atvinnuþróun nýaldar
    • meginstiklum í list og menningu á nýöld
    • mismunandi stjórnkerfum nýaldar, kostum þeirra og göllum
    • mikilvægi nýaldarsögu fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun
    • mismunandi sjónarhornum á samfélagsleg gildi og siðferði á nýöld
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina söguleg viðfangsefni á gagnrýninn hátt
    • rannsaka afmarkað sögulegt efni
    • setja fram söguleg viðfangsefni á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
    • skrifa texta sem byggja á ítarlegri heimildaöflun og úrvinnslu gagna
    • taka þátt í umræðum og verja rökstudda afstöðu sína
    • vinna að verkefnum með samnemendum
    • flytja framsögu um afmarkað sögulegt efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta áhrif nýaldarsamfélaga á eigið samfélag og sjálfsmynd
    • meta umfjöllun um nýöldina í nútímamiðlum
    • taka frumkvæði í þekkingaröflun
    • taka siðferðislega afstöðu til siða og atburða nýaldar
    • taka þátt í málefnalegum umræðum og rökræðum um sögu og samfélög nýaldar
    • útskýra viðhorf nýaldarfólks til ýmissa málefna
    Ástundun, ritgerð, fyrirlestur, verkefni, lokapróf eða lokaverkefni.