Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415964112.37

    Þýska 3
    ÞÝSK1CC05
    39
    þýska
    Þýska 3
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfram er unnið með lesskilning, tal, hlustun og ritun, sem og ýmis þemu tengd þýskumælandi löndum. Nemendur auka enn við orðaforða sinn. Ný og eldri málfræðiatriði eru þjálfuð
    ÞÝSK1BB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem tengist efni áfangans
    • góðum framburði, áherslum og hljómfalli tungumálsins
    • flóknari málfræðiatriðum en í fyrri áföngum
    • menningu þýskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál, t.d. um almenn efni sem hann kannast við, sem og fyrirmæli kennara í kennslustofu
    • taka þátt í samræðum og tjá skoðun sína um hversdagsleg málefni og bjarga sér í ýmsum aðstæðum daglegs lífs, geta spurt og svarað spurningum
    • skilja lykilatriði í textum, smásögum og blaðagreinum með meiri orðaforða en áður
    • skrifa stuttan texta, eins og t.d. útdrátt úr bók, stutta umsögn um kvikmynd eða texta um mynd(ir)
    • nýta sér þá málfræði sem þjálfuð hefur verið
    • vinna sjálfstætt eða í hópi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina í auknum mæli upplýsingar úr textum eða því sem hann heyrir
    • tjá sig um flóknari hluti en áður
    • lesa í aðstæður og haga orðum sínum eftir því sem við á
    • koma frá sér flóknari textum en áður og um fjölbreyttari málefni
    Skriflegt lokapróf er í áfanganum. Hluti af lokaeinkunn er annareinkunn. Inn í annareinkunn reiknast ýmis verkefni, hlutapróf, munnleg próf og hlustunarpróf sem tekin eru jafnt yfir önnina. Allir færniþættir eru metnir, þ.e. tal, hlustun, ritun og lesskilningur