Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1415964760.67

    Þýska 4
    ÞÝSK1DD05
    38
    þýska
    Þýska 4
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Unnið er sem fyrr með lesskilning, tal, hlustun og ritun, nemendur vinna með ýmis þemu tengd þýskumælandi löndum. Þeir læra og þjálfast í meira krefjandi orðaforða og tileinka sér ný og flóknari málfræðiatriði
    ÞÝSK1CC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meiri og flóknari orðaforða en áður
    • góðum framburði, áherslum og hljómfalli tungumálsins
    • meginatriðum þýskrar málfræði
    • menningu þýskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál, þar sem talað er um ýmis málefni
    • taka þátt í samræðum um ýmis málefni líðandi stundar og tjá skoðun sína, aflað sér munnlegra upplýsinga og svara spurningum um hversdagsleg málefni
    • skilja texta af ýmsum gerðum, eins og t.d. smásögur og skáldsögur sem sérstaklega eru samdar fyrir nemendur (léttlestrarbækur). Einnig að geta lesið sér til gagns blaðagreinar og ýmsar upplýsingar eða leiðbeiningar
    • skrifa lengri texta en áður, t.d. bréf, útdrætti úr bókum eða kvikmyndum, stutta leikþætti og myndatexta
    • nýta sér málfræðikunnáttu, bæði til að skrifa og tala
    • vinna sjálfstætt og með öðrum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tileinka sér innihald texta og skilja það sem sagt er
    • tjá sig um það sem hann hefur lesið eða heyrt og notað til þess flóknari orðaforða en áður, eins og t.d. ýmis orðatiltæki
    • túlka og leggja mat á aðstæður sem upp koma
    • skrifa lengri og flóknari texta en áður
    Skriflegt lokapróf er í áfanganum. Hluti af lokaeinkunn er annareinkunn. Inn í annareinkunn reiknast ýmis verkefni, hlutapróf, munnleg próf og hlustunarpróf sem tekin eru jafnt yfir önnina. Allir færniþættir eru metnir, þ.e. tal, hlustun, ritun og lesskilningur