Islands hovedstad; København
Saga Kaupmannahafnar:Borgarlíf og byggingar,konungar Íslands og Danmerkur og arfleifð þeirra,menning og menntun í Dk, saga og örlög Íslendinga í Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn nútímans:Byggingar–borgarlíf, stjórnskipulag–þing og þjóð, arfleifð Íslands í Kaupmannahöfn, Íslendingar í Kaupmannahöfn í dag, menntun og möguleikar,
4-5 daga ferð til Kaupmannahafnar.
3 áfangar í dönsku. Valáfangi á öllum brautum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Viðfangsefnum áfangans (sbr. lýsing á efni áfangans)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Halda uppi samræðum við dönskumælandi fólk um margvísleg málefni
Leita eftir upplýsingum á dönsku um hin ýmsu sérhæfð málefni og geta lesið/hlustað/tjáð sig sér til skilnings, gagns og skemmtunar
Tjá sig skriflega hnökralaust (með því að kunna að nýta sér hjálpargögn)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Halda uppi samræðum á dönsku og geta gert grein fyrir skoðunum sínum
Geta lesið/hlustað á dönsku, lagt gagnrýnið mat á efni og myndað sér skoðanir
Geta með undirbúningi verið með framsögn/kynningu á dönsku á sértækum viðfangsefnum
Geta tjáð sig skriflega og munnlega á dönsku um þá þekkingu sem hann hefur aflað sér, hvort sem það er efni námsskeiðsins eða þekking sem hann hefur aflað sér á annan hátt.
Er óhefðbundið þar sem m.a. er tekið er mið af virkni nemandans ásamt sjálfsmati hans.