Norska er notuð sem kennslumál í öllum áföngum. Nemendur eru þjálfaðir áfram í færniþáttunum fjórum:
hlustun, lestri, tali og ritun. Lögð er áhersla á að auka við og byggja upp virkan og óvirkan orðaforða nemenda til muna og kenna málfræðilega uppbyggingu setninga. Í þeim tilgangi eru notaðir textar sem fjalla um fjölbreytileg atriði í nútímaþjóðfélagi; norskt samfélag er kynnt og lesnir eru bókmenntatextar með kynningu á höfundum.
Nemendur þurfa að hafa lokið NORS2AA05
Áfanginn er undanfari fyrir NORS3CC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllu venjulegu tali á norsku
geta lesið og skilið almenna norska texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta tjáð sig munnlega á norsku um flest almenn efni
geta tjáð sig skriflega um flest almenn efni á nokkurn veginn réttu máli. Þessi lágmarkskunnátta er nauðsynleg til þess að nemendur geti nýtt sér það norskunám sem í boði er fyrir þennan nemendahóp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kynnast Noregi, norskri menningu og bókmenntum og geta sótt vinnu eða menntun í Noregi og vera þáttakendur í norrænu samfélagi
Målet med gymnasieundervisningen i norsk er: å forberede elevenes språklige kompetanse gjennom å øke deres ordforråd gjennom diverse øvinger, og lesing av ulike teksttyper.
Øve på grammatiske strukturer og utvide deres kapasitet til å uttrykke både muntlig og skriftlig
Å gi elevene dypere innsikt i norsk litteratur og det norske språkets utvikling i det norske samfunnet i dag og historisk
Gjennom norskstudiet vil man også streve etter å vedlikeholde og bygge på elevenes kunnskaper de har skaffet seg i Norge og gjøre dem forberedt til i framtiden virke i et nordisk samfunn
Námsmat í NORS2BB05 byggst á vinnuframlagi nemenda á önninni, hlutaprófi og lokaprófi.