Norska framhaldsáfangi. Lestur skáldsagna/bóka á norsku sem nemandi velur í samráði við kennara. Tekið er mið af getu nemanda við val á bókum. Áfanginn er kenndur sem P-áfangi.
NORS3DD05 Valáfangi á öllum brautum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Almennum orðaforða í skáldsögum og orðaforða til endursagnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Lesa texta og endursegja hann munnlega.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Lesa skáldverk sér til skemmtunar og skilnings og deila lestrarupplifun sinni með öðrum. Taka afstöðu til innihalds skáldsagnanna og stílbragða.
Munnleg skil eftir lestur hverrar bókar fyrir sig.