Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1416997886.73

    Stærðfræði 4 - Margliður, föll og diffrun
    STÆR3DD05
    62
    stærðfræði
    Dægurdæmi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Diffrun, bestun, andhverfur falla, logra- og vísisjöfnur.
    Nemandi skal hafa lokið STÆR3CC05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Samsett föll, andhverfur falla, hliðrun á ferli falls, markgildi (eiginleg og óeiginleg), samfelld föll, diffrun, helstu diffrunarreglur, jafna snertils, könnun margliðufalla, ræðra falla og hornafalla, bestun, vísisföll og lograföll og jöfnur þeim tengdar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita táknmáli í meðferð falla og í útreikningi markgilda.
    • Beita diffurreikningi til að teikna gröf margliðufalla og ræðra falla og til að leysa orðadæmi
    • Beita lograreglum til að einfalda og leysa jöfnur.
    • Nota grafíska vasareikna við lausn verkefna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja lausnir sínar skipulega fram og og nota stærðfræðilegt táknmál rétt.
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
    • Nýta sér þá þekkingu og leikni sem hann öðlast í áfanganum til að setja fram stærðfræðilegar sannanir og til að tengja saman ólíka efnisþætti.
    • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og innsæi við lausn verkefna og þrauta.
    • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnirnar.
    Námsmat byggist á frammistöðu á lokaprófi og vinnu á önninni, þ.e. á verkefnavinnu, tímaæfingum og heimaverkefnum.