Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1416998329.09

    Strjál stærðfræði
    STÆR4ES05
    7
    stærðfræði
    Strjál stærðfræði
    Samþykkt af skóla
    4
    5
    Rökfræði, talnafræði, línuleg bestun, leikjafræði, netafræði, talningarfræði og mengjafræði.
    Nemandi skal hafa lokið STÆR3DD05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Frumreglum rökfræðinnar, uppbyggingu sannana, grunnreglum leifareiknings, notkun talnafræði í sambandi við dulmál, reikniritum, línulegri bestun og notkun hennar til að skilja einfalda núllsummuleiki, netafræði og tengslum hennar við hagnýt dæmi, umröðunum og samantektum, helstu mengjaaðgerðum og fjöldatölum mengja.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita táknmáli rökfræði, talnafræði, netafræði, talningarfræði og mengjafræði.
    • Beita talnafræði til að þýða gefinn texta á dulmál og til að afkóða einfalda dulmálstexta.
    • Beita línulegri bestun til að leysa hámörkunar-og lágmörkunarverkefni til dæmis með hjálp grafískra vasareikna.
    • Beita þekktum reikniritum til að leysa verkefni í netafræði.
    • Beita helstu talningaraðferðum.
    • Beita hugtökum mengjafræði til að ákvarða hvort mengi séu samstétta.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Setja lausnir sínar skipulega og rétt fram, þannig að táknmál og texti renni saman í læsilega heild.
    • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.
    • Nýta sér þá þekkingu og leikni sem hann öðlast í áfanganum til að setja fram stærðfræðilegar sannanir og til að tengja saman ólíka efnisþætti.
    • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og innsæi við lausn verkefna og þrauta.
    • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnirnar.
    Námsmat byggist á frammistöðu á lokaprófi og vinnu á önninni, þ.e. á verkefnavinnu, tímaæfingum og heimaverkefnum.