Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1416999192.64

    Grunnáfangi í stærðfræði
    STÆR2AA05
    75
    stærðfræði
    algengar reikniaðgerðir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Mengi, algebra, verslunarreikningur, veldi, rætur, hornafræði, línur og rúmfræði.
    Nemendur hafi tileinkað sér grunnskólanámsefni í stærðfræði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mengjahugtökum og mengjaaðgerðum.
    • algebru, svo sem liðun, þáttun og styttingu brota, veldum og rótum.
    • verslunarreikningi, vaxtareikningi og tengdum hugtökum.
    • hvernig hægt er að leysa orðadæmi með jöfnum og jöfnuhneppum.
    • eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, svo sem hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins og skurðpunkts tveggja lína.
    • línulegum líkönum og myndrænum lausnum jöfnuhneppa.
    • Pýþagórasarreglunni og ýmsum rúmfræðireglum.
    • hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi.
    • kröfum um stærðfræðiþekkingu á nokkrum ólíkum námsleiðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mengjatákn.
    • liða, þátta og stytta algebrubrot, reikna veldi og rætur.
    • beita verslunarreikningi, vaxtareikningi og tengdum hugtökum.
    • nota Pýþagórasarregluna og ýmsar rúmfræðireglur.
    • setja fram línuleg líkön og vinna með þau.
    • beita hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi.
    • nota reiknivélar af öryggi og að beita þeim við útreikninga og til að leysa jöfnuhneppi .
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu máli eða myndrænt.
    • setja sig inn í og túlka röksemdir annarra.
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
    • vita hverskonar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, spyrja slíkra spurninga og gera sér grein fyrir hver hugsanleg niðurstaða geti orðið.
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar og lausnir.
    • klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka.
    • skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og beita einföldum röksemdum.
    • efla fjármálavitund.
    • átta sig á gildi stærðfræðinnar í öðrum námsgreinum svo sem náttúrufræði.
    Námsmat byggir á frammistöðu á lokaprófi og vinnu yfir önnina. Vinna yfir önnina samanstendur af verkefnavinnu, tímaæfingum og heimaverkefnum.