Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417003898.74

    Almenn líffræði
    LÍFV1GN05
    1
    Líffræði
    náttúrufræði fyrir opna stúdentsbraut og félagsfræðabraut
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Líffræði sem vísindagrein og vinnubrögðum lýst. Fjallað er um myndun alheimsins, efnisins og sólkerfisins. Hvernig efnið og hið dauða umhverfi lífsins myndaðist, og varð síðan lifandi. Sameiginleg einkenni lífvera. Frumukenningin og frumugerðir. Uppruni íslenska lífríkisins. Helstu hópar lífvera með áherslu á algengar íslenskar tegundir. Erfðaefnið, bygging þess, erfðafræði og þróun. Vistfræði og vistkerfi. Umfjöllun um umhverfismál fléttað inn í.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hverig talið er að alheimurinn, efnið, sólkerfið og jörðin hafi myndast
    • helstu kenningum um upphaf lífs
    • muninum á lifandi og dauðum fyrirbærum
    • frumukenningunni, byggingu og starfsemi dreifkjarna og heilkjarna frumna
    • hugmyndum um hvernig lífríki Íslands varð til
    • flokkun lífvera
    • grunnatriðum í erfðafræði, sameindalíffræði og vistfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera greinarmun á vísindalegri og óvísindalegri þekkingu
    • flokka algengar lífverur í viðeigandi flokkunareiningar
    • búa til einföld smásjársýni og skoða þau
    • greina helstu hlutverk lífvera í vistkerfum og mikilvægi þeirra
    • rekja einföld arfmynstur fyrir ríkjandi og víkjandi eiginleika
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á umhverfi sínu, úr hverju það er gert og að gerðir þeirra geta haft ýmis áhrif á það
    • uppplifa umhverfi sitt á auðugri hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá