Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417454247.47

    Viðskiptaenska
    ENSK3VI05
    20
    enska
    málskilningur, ritun, viðskiptaenska
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti bæði viðskiptaorðaforða og almennan orðaforða svo og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í ritun með ýmsum verkefnum sem tengjast viðskiptum. Einnig eru nemendur þjálfaðir í töluðu máli, bæði með umræðum og formlegum fyrirlestrum.
    Enska á öðru þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • enskum orðaforða og hugtökum sem tengjast viðskiptum
    • • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
    • • alþjóðlegum venjum og siðum í heimi viðskipta
    • • siðfræði viðskiptalífsins, til dæmis umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð
    • • mismunandi málsniði enskrar tungu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • lesa sér til gagns fræðilegar greinar viðskiptalegs eðlis
    • • skilja talað mál sem fjallar um viðskipti, til dæmis fyrirlestra
    • • taka virkan þátt í samræðum um viðskiptaleg málefni, tjá sig munnlega, bæði formlega og óformlega, um viðskiptaleg málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
    • • skrifa margs konar texta, meðal annars viðskiptabréf, útdrætti, skýrslur og rannsóknarritgerðir
    • • beita málinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    • • þýða texta viðskiptalegs eðlis
    • • tjá sig munnlega, bæði formlega og óformlega, um viðskiptaleg málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna sem fjalla um viðskipti
    • • tileinka sér efni ritaðs texta sem tengist viðskiptum og hagnýta á mismunandi hátt
    • • taka þátt í umræðum og færa rök fyrir máli sínu um viðskiptaleg málefni
    • • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt um málefni sem tengjast viðskiptum
    • • skrifa læsilega texta um efni sem tengist viðskiptum
    • • nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna
    • • geta lagt gagnrýnið mat á texta, hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
    • • beita gagnrýnni hugsun
    • • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
    Áfaginn er símatsáfangi þar sem vinna nemenda er metin jafnt og þétt.