Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417524018.38

    Alþjóðamál og samfélag
    ALÞJ3AS05
    1
    Alþjóðafræði
    alþjóðakerfið, alþjóðleg viðskipti, viðskiptavenjur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um alþjóðakerfið, alþjóðleg viðskipti og ólíkar viðskiptavenjur. Sjónarhorninu er einkum beint að ríkjum utan Evrópu, einkum þá Kína, Indlandi og ríkjum Ameríku. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, þar af vinna nemendur lokaverkefni í tengslum við námsefnð þar sem áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, heimildarýni og gagnrýna hugsun. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.
    ALÞJ2IA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • hugtökum, kenningum og viðfangsefnum sem tengjast alþjóðlegum viðskiptum og viðskiptamenningu
    • • arfi nýlendutímans og hvernig nýlendustefnan hefur haft áhrif á sögu, menningu og samfélag þjóða utan Evrópu
    • • mismunandi sjónarhornum á alþjóðleg gildi og siðferði
    • • þýðingu stjórnarfars og mismunandi gerðum þess
    • • þýðingu greinar fyrir upplýsta samfélagslega umræðu og gagnrýna hugsun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • setja viðfangsefni fram á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
    • • vinna á skilvirkan hátt, sýna frumkvæði og samvinnu við nám og störf
    • • verja rökstudda afstöðu sína í ræðu og riti
    • • taka þátt í umræðu og greina alþjóðleg samfélagsleg málefni á gagnrýninn hátt
    • • beita kenningum á viðfangsefni greinar og við lausn hagnýtra verkefna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • rökræða skoðanir annarra á yfirvegaðan og fordómalausan hátt
    • • útskýra viðhorf fólks á ýmsum stöðum og tímum
    • • efla siðferðilega dómgreind sína og vera meðvitaður um ólíka siði eftir menningarsamfélögum
    • • greina upplýsingar og efni fjölmiðla um alþjóðleg málefni á gagnrýninn hátt
    • • skýra samspil mannréttinda og samfélagslegra skyldna og hvernig arfur sögunnar (nýlendutímans) hefur haft áhrif á þróun mála í ríkjum utan Evrópu
    • • vinna að gerð lokaverkefnis þar sem þræðir áfangans eru teknir saman og nýttir til að vinna úr upplýsingum
    • • vera fær um að miðla upplýsingum á fjölbreyttan hátt þar sem tekið er mið af ólíkum aðstæðum, menningu og samfélagsgerð
    • • hafa tileinkað sér tungutak og hugsun sem einkennist af skilningi á ólíkum menningarlegum gildum og siðferði
    Námsmat byggir á lokaprófi og verkefnum, smærri og stærri sem nemendur vinna yfir önnina.