Kjarninn í þessum áfanga er iðkun jóga. Kynnt eru ýmis afbrigði jóga og stefnur. Fjallað er um hvað einkennir jóga og hvernig hægt er að nýta sér þætti úr iðkunninni til sjálfsskoðunar og meðferðar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu þáttum jógaiðkunnar
sögu og uppruna jógaiðkunnar
hugleiðslu
öndunar-, styrktar-, slökunar- og jafnvægisæfingum
hvað felst í líkamsvitund
hugsanlegum ávinningi þess að stunda jóga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma jógastöður
tengja jógastöður í huga og líkama
nota eigin andadrátt til slökunnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: