Lögð er áhersla á að nemendur fái sem fjölbreyttasta hreyfingu sem reynir hæfilega á hjarta- og æðakerfið, vöðvastyrkingu og viðhaldi liðleika. Lögð er áhersla á Interval þjálfun með æfingarkerfum eins og tabata, krossfit og stöðvahringjum, sem henta vel miðað við þá aðstöðu sem er til staðar. Lagður er grunnur að því að nemendur geti stundað sjálfstætt sína líkamsrækt. Vinna með viljastjórnun (hugurinn takmarkar oft getuna). Snerpuþjálfun fer m.a. fram með hinum ýmsu knattleikjum.
Unnið er í beinu framhaldi af áfanganum ÍÞRÓ1ÍA01
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• ræktun líkama og sálar
• mikilvægi hreyfingar með tilliti til heilsueflingar og vellíðunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• tileinka sér fjölbreytta grunnþjálfun s.s. í þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun
• taka þátt í æfingum sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
• nýta mismunandi leiki til eflingar þessara grunnþátta hreyfingar fyrir líkama
• rækta með sér jákvæð áhrif á líkamlega og andlega vellíðan
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• meta líkamlega, andlega og félagslega stöðu sína
• þekkja grunnreglur ýmissa íþróttagreina
• meta hæfni sína á hreyfingu / líkamsrækt
• virða skoðanir og getu annarra
Í áfanganum er námsmat að mestu leyti byggt á ástundun og hæfni nemenda til að tileinka sér þekkingu og leikni ásamt líkamlegum mælingum sem eru í samræmi við það sem unnið er með hverju sinni.