Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417704367.59

    Líkamsrækt og heilsa A
    ÍÞRÓ1ÍC01
    21
    íþróttir
    Líkamsrækt og heilsa A
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái sem fjölbreyttasta hreyfingu sem reynir hæfilega á hjarta- og æðakerfið, vöðvastyrkingu og viðhaldi liðleika. Lögð er áhersla á Interval þjálfun með æfingarkerfum eins og tabata, kross-fit og stöðvahring, sem henta vel aðstöðunni. Einnig er unnið með knattleiki og almenna leiki. Nemendur fá bóklega fræðslu um grunnþætti líkamlegrar heilsu, einkum er fjallað um þol, styrk, næringu/mataræði og lífstíl. Lögð er rík áhersla á að upplýsa nemendur um gildi þess að stunda reglulega hreyfingu - alltaf.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • ræktun líkama og sálar
    • • mikilvægi hreyfingar með tilliti til heilsueflingar og vellíðunar
    • • gildi hreyfingar fyrir líffærakerfi líkamans
    • • hvers virði hæfileg hreyfing er með tilliti til góðs ífsstíls til framtíðar
    • • æskilegri næringu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • setja sér raunhæf markmið varðandi hreyfingu
    • • taka á markvissan og fjölbreyttan hátt þátt í þol- og styrktaræfingum
    • • rækta með sér jákvætt viðhorf til líkamsræktar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • meta líkamlega, andlega og félagslega stöðu sína
    • • stunda þolþjálfun, þekkja greinarmun á loftháðri- og loftfirrtri þoluppbyggingu
    • • stunda styrktarþjálfun
    • • nærast á heilbrigðan hátt - með vitneskju um skaðsemi of- og vanneyslu
    • • forðast lífsstíl sem leitt getur til áunninna sjúkdóma – lífsstílssjúkdóma
    • • stunda reglulega líkamsrækt með áherslu á heilsuna – ”líkami fyrir lífið”
    Námsmat er að mestu leyti byggt á ástundun og hæfni nemenda til að tileinka sér þekkingu og leikni ásamt líkamlegum mælingum sem eru í samræmi við það sem unnið er með hverju sinni.