Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1417774839.26

    Vísindaenska
    ENSK3NV05
    21
    enska
    vísindaenska
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Námið miðar að því að nemendur auki færni sína í enskri tungu og bæti bæði vísindaorðaforða og almennan orðaforða svo og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í ritun með ýmsum verkefnum sem tengjast vísindum. Einnig eru nemendur þjálfaðir í töluðu máli, bæði með umræðum og formlegum fyrirlestrum.
    ENS3SV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • enskum orðaforða og hugtökum sem tengjast vísindum
    • • orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
    • • siðfræði vísinda, til dæmis umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð
    • • mismunandi málsniði enskrar tungu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • lesa sér til gagns fræðilegar greinar um efni tengd vísindum
    • • skilja talað mál sem fjallar um vísindi, til dæmis fyrirlestra
    • • að taka virkan þátt í samræðum um vísindaleg málefni
    • • tjá sig munnlega, bæði formlega og óformlega, um efni sem tengjast vísindum sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
    • • skrifa ýmiss konar texta sem tengist vísindum, meðal annars útdrætti, skýrslur og rannsóknarritgerðir
    • • beita málinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    • • þýða texta sem fjalla um vísindaleg efni
    • • skrifa útdrætti úr vísindagreinum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna sem fjalla um vísindaleg efni
    • • tileinka sér efni ritaðs texta sem tengist vísindum og nýta á mismunandi hátt
    • • taka þátt í umræðum og færa rök fyrir máli sínu um vísindaleg málefni
    • • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt um málefni sem tengjast vísindum
    • • skrifa texta um efni sem tengist vísindum og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við
    • • nýta sér upplýsingatækni til fróðleiks og rannsókna
    • • geta lagt gagnrýnið mat á texta, nýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
    • • beita gagnrýnni hugsun
    • • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
    Námsmat er í formi símats.