Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418037628.94

    Saga Bandaríkjanna
    SAGA3CB05
    36
    saga
    Saga Bandaríkjanna.
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Viðfangsefni áfangans er bandarísk innanríkissaga frá tímum fyrstu evrópsku landnemanna fram að árþúsundamótum. Áfanginn veitir yfirlit yfir helstu þætti bandarískrar sögu en nemendur fá tækifæri til að kanna afmarkaða þætti í valverkefnum á önninni. Markmið áfangans er að nemendur kynnist sögu Bandaríkjanna og hvernig þau hafa tekið breytingum í tímans rás. Nemendur kynnist og greini frumheimildir úr bandarískri sögu sem og birtingarmyndir hennar í amerískri dægurmenningu.
    10 feiningar í sögu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • áhrifum kynhlutverka og stéttskiptingar á líf fólks í bandarískri sögu
    • helstu atburðum úr bandarískri sögu sem vísað er til í samtímanum
    • helstu hugtökum, kenningum og viðfangsefnum bandarískrar sögu
    • hlutverki og mikilvægi trúarbragða í bandarískri sögu
    • meginstiklum í tækni-, vísinda- og atvinnuþróun Bandaríkjanna
    • mismunandi hugmyndum og framkvæmd á bandarísku stjórnkerfi, kostum þeirra og göllum
    • mismunandi sjónarhornum á samfélagsleg gildi og siðferði í Bandaríkjunum
    • örlögum og sögu frumbyggja og þræla í Bandaríkjunum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina fjölbreytt orsakasamhengi
    • leita sér að gagnlegum heimildum
    • rannsaka afmörkuð söguleg efni
    • setja fram söguleg viðfangsefni á skýran, aðgengilegan og fjölbreyttan hátt
    • skrifa texta sem byggja á ítarlegri heimildaöflun og úrvinnslu gagna
    • sýna sjálfstæði og sköpun í verkefnavali og verkefnaúrlausnum
    • taka þátt í umræðum og verja rökstudda afstöðu sína
    • vinna að verkefnum með samnemendum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa heimildir um bandaríska sögu á gagnrýninn hátt
    • meta umfjöllun um bandaríska sögu í nútímamiðlum
    • taka frumkvæði í þekkingaröflun og verkefnavali og nálgast þau á faglegan hátt
    • taka siðferðislega afstöðu til siða og atburða í bandarískri sögu
    • taka þátt í málefnalegum umræðum og rökræðum um sögu og samfélag Bandaríkjanna
    • útskýra bandarísk viðhorf og hugmyndir um ýmis málefni
    Tímaverkefni, valverkefni með frjálsu sniði, munnlegt próf.