Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur fái sem fjölbreyttasta hreyfingu sem reynir hæfilega á hjarta- og æðakerfið, vöðvastyrkingu og viðhaldi liðleika. Lögð er áhersla á Interval þjálfun með æfingarkerfum eins og tabata, kross-fit og stöðvahring, sem henta vel aðstöðunni. Einnig er unnið með knattleiki og almenna leiki.
Nemendur fá bóklega fræðslu um grunnþætti líkamlegrar heilsu. M.a. fá nemendur fræðslu og æfingu í skyndihjálp. Áfram er unnið að "heilbrigðri sál í hraustum líkama".
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• ræktun líkama og sálar
• mikilvægi hreyfingar með tilliti til heilsueflingar og vellíðunar
• gildi hreyfingar fyrir líffærakerfi líkamans
• hvers virði hæfileg hreyfing er með tilliti til góðs lífsstíls til framtíðar
• æskilegri næringu
• framkvæmd líkamlegra (afkasta)mælinga – framkvæmd og úrvinnslu
• til að útskýra niðurstöður mælinga og meta niðurstöðurnar
• neikvæðum áhrifum vímuefnaneyslu á líkama og sál
• grunnatriðum skyndihjálpar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• vinna sjálfstæð verkefni í hópi
• eiga samskipti við aðra nemendur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• meta líkamlega, andlega og félagslega stöðu sína
• stunda þolþjálfun og þekkja greinarmun á loftháðri- og loftfirrtri þoluppbyggingu
• stunda styrktarþjálfun
• nærast á heilbrigðan hátt - með vitneskju um skaðsemi of- og vanneyslu
• forðast lífsstíl sem leitt getur til áunninna sjúkdóma – lífsstílssjúkdóma
• framkvæma (afkasta)mælingar og skýra frá niðurstöðum (fyrir hópinn)
• forðast ávanabindandi eiturefni
• bregðast við og taka frumkvæði ef viðkomandi er staðsettur þar sem þörf er á fyrstu hjálp
Námsmat er að mestu leyti byggt á ástundun og hæfni nemenda til að tileinka sér þekkingu og leikni ásamt líkamlegum mælingum sem eru í samræmi við það sem unnið er með hverju sinni.