Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418055108.42

    Almenn heilsurækt B
    ÍÞRÓ1ÍF01
    17
    íþróttir
    Almenn heilsurækt B
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega, líkamlega og félagslega. Farið er í ýmis æfingaform s.s. styrktaræfingar, jóga, slökun, körfuknattleik, knattspyrnu, blak, bandý, badminton, borðtennis, ýmsa leiki og dans. Boðið er uppá útivist að hluta til þar sem gengið er á fjöll og önnur svæði í nærumhverfinu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans
    • • mikilvægi slökunar
    • • mikilvægi lágmarks hreyfingar (að ráðleggingu landlæknis)
    • útivist/útiveru
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • stunda líkams- og heilsurækt
    • • stuðla að bættri líkamsbeitingu með æfingum og hreyfingu við hæfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • stunda reglulega, fjölbreytta hreyfingu eftir áhuga hvers og eins
    • • mynda sér skoðun og greina frá afstöðu sinni til heilbrigðs lífsstíls
    • • forðast ávana- og fíkniefni
    • • geta stundað líkamsrækt í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
    • • stunda ”líkamsrækt fyrir lífstíð”
    Í áfanganum Almenn heilsurækt B er námsmat byggt á ástundun og hæfni nemenda til að tileinka sér reglulega ástundun hreyfingar á sem fjölbreyttastan hátt með virkri þátttöku.