Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418289563.11

    Mannkynssaga 1789-2000
    SAGA2MS05
    16
    saga
    mannkynssaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Mannkynssaga frá frönsku byltingunni til nútímans. Farið verður í afleiðingar frönsku byltingarinnar, Napóleonsstyrjaldirnar og áhrif þeirra, sögu 19. aldarinnar og iðnbyltinguna, þróun stjórnarfars og breytingar sem verða við stofnun nýrra ríkja í öðrum heimsálfum. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, þar af a.m.k. eitt stórt hópverkefni. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu.
    SAGA1FM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • nokkrum afmörkuðum skeiðum sögunnar með tilliti til ýmissa sviða hennar svo sem: menningar, hugarfars, stjórnmála, einstaklinga, samfélags, tækni og vísinda
    • • framþróun í okkar heimshluta síðustu aldir og tengslum hans við aðrar heimsálfur og helstu þáttum í sögu tuttugustu aldar
    • • fjölbreytileika heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • koma á framfæri þekkingu sinni og skilningi á sögulegri þekkingu
    • • vinna sjálfstætt sem og í hópum að gerð fjölbreyttra heimildaverkefna
    • • lesa og túlka texta, kort, töflur, gröf og myndir frá mismunandi tímaskeiðum
    • • vinna sjálfstætt sem og í hópum að gerð fjölbreyttra heimildaverkefna
    • • meta gildi ólíkra heimilda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • velta fyrir sér ólíkum sögulegum skýringum, taka þátt í skoðanaskiptum og meta ólík sjónarhorn sögulegra álitamála
    • • meta söguleg fyrirbæri út frá forsendum hvers tíma og sjá tengsl þeirra við nútíma
    • • rýna í heimildir, vinna úr þeim og leggja á þær gagnrýnið mat
    • • beita upplýsingatækni í þekkingarleit sinni
    • • meta gildi vettvangsskoðunar út frá skynrænum upplifunum
    • • njóta lista, menningar og samfélagsumræðu og tengja það sögulegri þekkingu sinni
    Námsmat byggir á lokaprófi og verkefnum, smærri og stærri sem nemendur vinna yfir önnina.