Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1418304313.9

    Líffræði, verkefnalíffræði
    LÍFF3VL05
    9
    líffræði
    Verkefnalíffræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn tekur mið af heimildaöflun og rannsóknarvinnu. Lögð er áhersla á að nemandi samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í LIFF2LE05 og LIFF2EF05, með sérstakri áherslu á líffræði. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga og greina, rifja upp efni þeirra og setja það í víðara samhengi en áður hefur verið gert. Hver nemandi vinnur einstaklings heimildaverkefni. Nemendur framkvæma rannsókn í hópavinnu og vinna rannsóknarskýrslu og veggspjald úr rannsókninni. Þeir kynna rannsókn sína fyrir samnemendum með fyrirlestri. Einnig kynna þeir veggspjaldið á Vísindaráðstefnu skólans. Nemendur velja efnisþætti í samráði við kennara hverju sinni. Sjálfstæð vinnubrögð nemenda eru höfð í fyrirrúmi með leiðsögn frá kennara.
    LIFF2LE05 og LIFF2EF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • sérhæfðum sviðum líffræðinnar
    • • sérhæfðum orðaforða á íslenskri og enskri tungu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
    • • sérhæfðri rannsóknarvinnu fræðigreinarinnar líffræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • gera raunhæfar áætlanir um skrif heimildaritgerða og rannsókna
    • • nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við sérhæfð verkefni
    • • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
    • • safna upplýsingum, vinna úr þeim og miðla til annarra
    • • setja fram og túlka myndir og gröf
    • • skipuleggja rannsóknarverkefni, framkvæma og útskýra út frá takmörkuðum fyrirmælum
    • • hagnýta sér tengsl milli stærðfræði og náttúru- og raungreina til úrlausnar verkefna
    • • tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • auka skilning sinn á líffræðilegum viðfangsefnum
    • • nýta sér þekkingu í meðferð heimilda
    • • beita mismunandi rannsóknaraðferðum og túlka niðurstöður
    • • geta yfirfært og beitt þekkingu úr einum efnisþætti eða fleirum við lausn verkefna í öðrum efnisþáttum og greint samhengi þar á milli
    • • útskýra, greina, draga ályktun af og miðla niðurstöðum rannsóknar
    • • taka þátt í og stjórna upplýstri umræðu um málefni er snerta vísindi, tækni og samfélag
    • • taka þátt í vísindaráðstefnu þar sem skipst er á skoðunum eftir kynningar á rannsóknarverkefnum
    • • taka ábyrgð á eigin námi
    Dagbók sem er haldin yfir önnina, heimildaritgerð sem er unnin út frá áhugasviði nemenda, rannsóknarskýrsla sem byggir á eigin rannsókn nemenda, fyrirlestur um rannsóknina og veggspjald þar sem rannsóknarverkefnið er kynnt á Vísindaráðstefnu skólans. Einkunn áfangans byggir á símati.