Í áfanganum kynnast nemendur matargerð frá ólíkum löndum með áherslu á götueldhús og skyndibita. Í hverri viku verður nýr áfangastaður valin af hópnum í sameiningu. Nemendur vinna menningartengd verkefni um landið sem heimsótt er og mæta einu sinni í viku í verklegan tíma þar sem eldaður verður götumatur frá viðkomandi svæði.
Nemendur safna að sér gögnum yfir önnina og skila inn ferilmöppu í lokin. Verkefni í ferilmöppu þurfa að vera samþykkt af kennurum til þess að vera gild til lokamats.
ENSK2OT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum hefðum landa í götueldun/skyndibita
landafræði og mannlífi þeirra landa sem skoðuð eru
tónlist, kvikmyndamenningu og íþróttalífi þeirra landa sem heimsótt eru
meðhöndlun matvæla, nýtni og hvernig mismunandi hráefnanotkun endurspegli þau svæði þaðan sem réttirnir koma
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa texta sem tengist matargerð og menningu
greina sérkenni í matarmenningu ýmissa þjóða
matreiða rétti frá ýmsum menningarsvæðum
safna saman upplýsingum til að vekja athygli á ólíkum löndum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afla sér upplýsinga um matargerð og menningu, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í náminu
nálgast matarmenningu annarra svæða með opnum huga
útvíkka matarsmekk sinn til aukinnar lífsfyllingar
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.