Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1420488811.4

    Grunnþættir í rekstrarhagfræði
    HAGF2GR05
    17
    hagfræði
    grunnþættir í rekstarhagfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um rekstur fyrirtækja og umhverfi þeirra. Fjallað er um grunnatriði hagfræðinnar og skilgreiningar á mismunandi skipulagsheildum. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist yfirsýn yfir fyrirtæki sem skipulagsheild og hvernig það þrífst í samkeppni við önnur fyrirtæki.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum hagfræðinnar, skorti, vali og fórnarkostnaði
    • hugtökunum framboð og eftirspurn
    • helstu framleiðsluþáttum
    • helstu kostnaðarhugtökum
    • beinum og óbeinum kostnaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja hugtökin tekjur, kostnaður og afkoma
    • nota aðferðir við útreikning framlegðar og rekstrarjafnvægis
    • þekkja mismunandi rekstrarform fyrirtækja
    • reikna út framlegð og hagnað
    • gera fjárhagsáætlun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá