Í áfanganum verður farið ítarlega í gangtegundir íslenska hestsins og grunnatriði þjálfunar með tilliti til hreyfieðlis hestsins og líkamsbeitingu knapans. Nemendur kynnast þróun reiðmennsku og hestahalds á Íslandi og farið verður yfir helstu keppnisgreinar og félagskerfi hestamennskunnar á Íslandi. Í áfanganum verður lögð áhersla á atriði í fóðrun, heilbrigði og umhirðu hesta.
HEST1HE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gangtegundum íslenska hestsins
þróunarsögu reiðmennsku og hestahalds á Íslandi
líkama hestsins og hvernig hesturinn beitir sér með og án knapa
fræðunum sem liggja að baki einföldum fimiæfingum við hendi, reið og í hringteymingu
líkamsbeitingu knapans og hvernig hún hefur áhrif á hestinn
heilbrigði, fóðrun og umhirðu hesta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
vinna sjálfstætt og í hópum
flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
greina líkamlega hegðun og skapgerð mismunandi hesta
geta skilgreint einfaldar fimiæfingar við hendi og á baki
sjá mun á gangtegundum og líkamsbeitingu hesta með og án knapa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
setja saman fjölbreytta og góða þjálfunaráætlun
greina og skilja þjálfunarferlið hjá öðrum knöpum
taka þátt í umræðum um það sem er að gerast í hestamennskunni í dag
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.