Áfanginn er verklegur og munu nemendur læra að ríða nákvæmar reiðleiðir á reiðvelli og fá grunnþjálfun í einföldum fimiæfingum við hendi og á baki. Nemendur verða meðvitaðari um líkamsbeitingu sína og áhrif hennar á hestinn í reið. Farið verður ítarlega í ásetu og stjórnun knapans. Nemendur læra um notkun mismunandi búnaðs í reið og við hringteymingu.
HEST1HV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ábendingarkerfi knapans
aðferðum til að bæta eigið jafnvægi
náttúrulegu eðli og atferli hestsins og hvernig hestinum er kennt út frá því
einföldum fimiæfingum sem unnar eru við hendi, í hringteymingu og á baki
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
styðja sig við mismunandi aðferðir í þjálfun hesta
geta framkvæmd einfaldar fimiæfingar við hendi og á baki
bregðast rétt við mismunandi skapgerð og hegðun hesta
nýta sér mismunandi ásetur og ábendingar við stjórnun hests
geta fylgt hreyfingum hestsins mjúklega eftir í mismunandi ásetu og á mismunandi gangtegundum
taka sjálfstæða ákvörðun í vali á þjálfunarbúnaði
geta lesið í viðbrögð hests hvort hann sé heilbrigður eða þarfnist aðhlynningar
taka sjálfstæðar ákvaðarnir varðandi eigið verklag í umgegni hesta
miðla og aðstoða við aðra í hestamennsku
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera sjálfstæður í vinnubrögðum í umgengni við hesta og borið ábyrgð á fóðrun og umhirðu þeirra
miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
vinna út frá forsendum hestsins með hestvænar aðferðir að leiðarljósi
finna fyrir auknu sjálfstrausti og vera öruggari með sig á hestbaki
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.