Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Íslenskar bókmenntir frá 1970 til dagsins í dag
nútímabókmenntir
Fjallað er um íslenskar bókmenntir frá 1970 til dagsins í dag. Lögð er áhersla á hvernig bókmenntirnar endurspegla þjóðfélagið.
ÍSLE3NM05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- öllum helstu bókmenntahugtökum
- mismunandi tegundum bókmennta
- bókmenntastefnum í íslenskum bókmenntum frá 1970
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til gagns og gamans og rýna í bókmenntatexta
- nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
- flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
- skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýnni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- draga saman aðalatriði og beita gagnrýnni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
- átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum í texta
- sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá