Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421155462.72

    Verkefnaeðlisfræði
    EÐLI3VE05
    20
    eðlisfræði
    heimildavinna, rannsóknir, verkefnaeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn tekur mið af heimildaöflun og rannsóknarvinnu. Lögð er áhersla á að nemandi samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í EÐLI1DL05, EÐLI2BY05, EÐLI3RA05 og JARÐ2JE05 með sérstakri áherslu á eðlisfræði. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga og greina, rifja upp efni þeirra og setja það í víðara samhengi en áður hefur verið gert. Hver nemandi vinnur einstaklings heimildaverkefni. Nemendur framkvæma rannsókn/athugun í hópavinnu og vinna rannsóknarskýrslu og veggspjald úr rannsókninni. Þeir kynna rannsókn sína fyrir samnemendum með fyrirlestri. Einnig kynna þeir veggspjaldið á Vísindaráðstefnu skólans. Nemendur velja efnisþætti í samráði við kennara hverju sinni. Sjálfstæð vinnubrögð nemenda eru höfð í fyrirrúmi með leiðsögn frá kennara.
    EÐLI1DL05, EÐLI2BY05, EÐLI3RA05 og JARÐ2JE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • sérhæfðum sviðum eðlisfræðinnar/jarðeðlisfræðinnar
    • • sérhæfðum orðaforða á íslenskri og enskri tungu sem nýtist til undirbúnings fyrir frekara nám
    • • sérhæfðri rannsóknarvinnu fræðigreinarinnar eðlisfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • gera raunhæfar áætlanir um skrif heimildaritgerða og rannsóknir
    • • nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við sérhæfð verkefni
    • • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
    • • safna upplýsingum, vinna úr þeim og miðla til annarra
    • • setja fram og túlka myndir og gröf
    • • skipuleggja rannsóknarverkefni/athugun, framkvæma og útskýra út frá takmörkuðum fyrirmælum
    • • hagnýta sér tengsl milli stærðfræði og náttúru- og raungreina til úrlausnar verkefna
    • • tjá skoðanir sínar og verkefni á skýran hátt, draga ályktanir og rökstyðja í fræðilegu samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • auka skilning sinn á eðlisfræðilegum viðfangsefnum
    • • nýta sér þekkingu á meðferð heimilda
    • • beita mismunandi rannsóknaraðferðum og túlka niðurstöður
    • • yfirfæra og beita þekkingu úr einum efnisþætti eða fleirum við lausn verkefna í öðrum efnisþáttum og greina samhengi þar á milli
    • • yfirfæra og beita þekkingu úr einum efnisþætti eða fleirum við lausn verkefna í öðrum efnisþáttum og greina samhengi þar á milli
    • • útskýra, greina, draga ályktun af og miðla niðurstöðum rannsóknar
    • • taka þátt í og stjórna upplýstri umræðu um málefni er snerta vísindi, tækni og samfélag
    • • taka þátt í vísindaráðstefnu þar sem skipst er á skoðunum eftir kynningar á rannsóknarverkefnum
    • • taka ábyrgð á eigin námi
    Dagbók sem er haldin yfir önnina, heimildaritgerð sem er unnin út frá áhugasviði nemenda, rannsóknarskýrsla sem byggir á eigin rannsókn/athugun nemenda, fyrirlestur um rannsóknina/athugunina og veggspjald þar sem verkefnið er kynnt á Vísindaráðstefnu skólans. Einkunn áfangans byggir á símati.