Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421239611.17

    Líffræðileg eðlisfræði
    EÐLI2LI05
    12
    eðlisfræði
    eðlisfræði, líffræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Efni áfangans eru grunnþættir eðlisfræði sem nauðsynlegir eru til að nemendur á líffræðisviði geti skilið starfsemi líffæra og lífvera. Kennslan fer fram með innlögn í formi fyrirlestra og verkefnavinnu þar sem nemendur vinna sem einstaklingar eða í hópum. Verklegar æfingar eru einnig hluti kennslunnar þar sem nemendur vinna saman í hópum. Upplýsingaleit fer fram á netinu samhliða efni frá bókasafni.
    EÐLI1DL05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • eðlisfræðilegum undirstöðuatriðum líffæra og lífvera
    • • varma, hitastigi, eðlisvarma, kælingu, hitun, fasaskiptum, flæði vökva og jöfnum
    • • Bernoullis og Poiseuilles, sveimi agna (diffusion)
    • • grunnhugtökum í rafmagns- og segulfræði sem tengjast starfsemi lífvera, sér í lagi lögmáli Ohms
    • • rafspennu, rafstöðuorku og rafsviði yfir himnur og færslu jóna gegnum frumuhimnur, himnuspennu
    • • afpólun og rýmd í taugafrumum
    • • bylgjuhreyfingu, ljósbylgjum, hljóðbylgjum
    • • lögmáli Weber-Fechner
    • • víxlverkun ljóss og efnis
    • • geislavirkni og áhrifum geislunar á lífverur, kjarnorku og uppruna frumefnanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • tengja starfsemi lífvera við þau eðlisfræðilegu grunnlögmál sem liggja til grundvallar
    • • setja upp og vinna úr einföldum dæmum og verkefnum sem tengjast lífeðlisfræðilegum þáttum
    • • leita sér þekkingar í prentuðum gögnum og netmiðlum
    • • meta út frá eðlisfræðilegum forsendum hvort tilteknar fullyrðingar eða tilgátur séu raunhæfar eða ekki
    • • meta áreiðanleika upplýsinga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skilja víxlverkun lífvera við umhverfi sitt með tilliti til eðlisfræðilegra þátta – varma, skynjunar, geislunar o.þ.h. – og tengsl ýmissa grunnþátta í starfsemi lífvera við einföld eðlisfræðileg lögmál
    • • skilja ýmis valin atriði á borð við skölunarlögmál (hvaða þættir takmarka stærð lífvera og lögun)
    • • lesa sér til gagns vísindatexta sem skrifaðir eru fyrir hinn almenna upplýsta lesanda
    Lokapróf og vinnueinkunn sem er samsett úr verkefnavinnu, verklegum æfingum og tveimur hlutaprófum.