Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421240603.83

    Námsval og samfélag
    LÍFS1NV01
    30
    lífsleikni
    lýðræði, mannréttindi, námsval, samélag
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Efni áfangans eru fjölbreyttir þættir sem snerta daglegt líf og tengsl nemenda við samfélagið. Lögð er áhersla á að kynna fyrir nemendum námsframboð og námsleiðir í háskólum hérlendis og erlendis. Nemendur fá einnig fræðslu í ýmiss konar forvörnum. Þeim eru kynntar ýmsar stofnanir í samfélaginu. Auk þess verður sjónum beint að álitamálum líðandi stundar er snerta lýðræði og/eða mannréttindi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • námsframboði og námsleiðum sem í boði eru eftir framhaldsskóla
    • • námstækni og mikilvægi markmiðasetninga
    • • gildi réttra ákvarðana í lífinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • greina og meta aðstæður í samfélaginu þar sem álitamál er lúta að lýðræði og mannréttindum ber á góma
    • • skoða námsframboð og námsleiðir í háskóla
    • • nýta sér upplýsingar um forvarnir og heilsueflingu
    • • bera virðingu fyrir sjálfum sér
    • • sýna umburðalyndi, samhygð og virðingu fyrir öðrum
    • • taka þátt í jafnréttisumræðu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • bera ábyrgð á eigin ákvarðanatöku
    • • taka ábyrgð á eigin námi
    • • nýta styrkleika sína sem best
    • • auka færni sína í mannlegum samskiptum
    • • meta og gera grein fyrir kostum og göllum ýmissa álitamála í samfélaginu er lúta að lýðræði og mannréttindum
    Áfanginn er próflaus.