Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1421836850.06

    Enska
    ENSK3OR05(E5)
    57
    enska
    Bókmenntir (fjölbreyttir textar), menning, orðaforði, rannsóknir og ritun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    E5
    Bókmenntir (Shakespeare & nútímabókmenntir), menning, orðaforði, rannsóknir og ritun.
    ENSK3OG05 eða sambærilegur áfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
    • menningu þeirra þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi
    • orðaforða sem gerir nemenda kleift að tileina sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi og/eða starfi
    • hefðum sem eiga við um talað og ritað mál t.d. mismunandi málsnið
    • uppruna tungumálsins og útbreiðslu, og skildleika þess við íslenskt mál
    • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja og skilja vel sérhæfða texta á sviði sem nemandi þekkir
    • skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögn er ekki endilega skipulögð eða fullmótuð
    • lesa, sér til ánægju eða upplýsingaöflunnar, texta sem gera miklar kröfur til lesenda, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
    • geta tjáð sig af öryggi um margvísleg málefni hvort sem þau eru almenn eða persónulegs eðlis
    • notkun tungumálsins á sveigjanlegan og árangursríkann máta í samræðum
    • beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum eða persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem nemandi þekkir eða getur aflað sér þekkingar á
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni tæknilegs eða fræðilegs eðlis
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu, sem og rituðu, máli og undirliggjandi tilgangi og viðhorfum þess sem talar/ritar
    • geta lagt gagnrýnið mat á texta sem og hagnýtt sér fræðitexta og metið heimildir á gagnrýninn hátt
    • beita málinu án meiriháttar vandkvæða til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
    • geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð og dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt með dæmum og geta brugðist við fyrirspurnum
    • beita rithefðum sem við eiga í textasmíð m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
    • vinna úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild skv. þeim hefðum sem gilda um heimildarvinnu
    • skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af því hver lesandi er
    • skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem fram koma rök með og á móti, og þau rök vegin og metin
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá