Í áfanganum er farið í helstu grunndvallaratriði í líffæra- og lífeðlisfræði mannslíkamans. Fjallað er um hringrásarkerfið, samsetningu blóðs, byggingu og starfssemi hjartans og varnarkerfi líkamans. Bygging og hlutverk öndunarfæranna og stjórn öndunnar er skoðuð. Einnig er fjallað um byggingu og hlutverk meltingarkerfis, þvagfærakerfis og æxlunarkerfis.
LÍOL2SS05 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
byggingu, starfsemi og hlutverkum hringrásar-, vessa-, meltingar-, öndunar-, þvagfæra- og æxlunarkerfis
eðliseinkennum blóðs og hlutverki þess í líkamanum
megingerðum blóðfrumna, einkennum þeirra, hlutverki og myndunarstað
byggingu hjartans og eðli hjartsláttar
þeim þáttum sem ákvarða og stjórna blóðþrýstingi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rekja blóðstreymið um hjartað
fylgja eftir flæði vessa um kerfið
rekja leið innönundarloftsins og lýsa stjórn öndunar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra leiðir blóðs um líkamann
útskýra ferli inn- og útöndunar
útskýra frjóvgun og fyrstu daga fósturþroskans
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.