bókmenntir, orðaforði, stig b2 í evrópska tungumálarammanum
ENSK3OB05
76
enska
bókmenntir, orðaforði, stig b2 í evrópska tungumálarammanum
Samþykkt af skóla
3
5
Kröfur áfangans samsvara hæfnisþrepi B2 í evrópska tungumálarammanum. Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa grunnþætti tungumálanáms, þ.e. lestur, tal, ritun og hlustun. Meginmarkmið er að byggja upp fræðilegan orðaforða nemenda og þjálfa þá í ritun.
ENSK2EV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lestri sérvaldra, óstyttra bókmenntatexta og orðaforða sem þeim tengjast
uppbyggingu mismunandi bókmenntatexta, blaðagreina og fræðigreina
lestri ýmissa texta, svo sem fræðigreina með tilliti til orðaforða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skilja og greina bókmenntatexta, munnlega og skriflega, og ýmsa undirliggjandi þætti í þeim með því að beita flóknari setningum
skrifa mismunandi texta, s.s. ritgerðir, útdrætti og og geta haldið uppi rökum fyrir sérvöldum efnum
tjá sig á góðri ensku um sérvalin málefni
skilja erfiðari sérhæfðan orðaforða vísinda-, og námsgreina
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera grein fyrir eigin skoðun og annarra, m.a. með því að greina afstöðu höfunda texta
geta áttað sig á dýpri merkingu texta og tekið þátt í skoðanaskiptum um málefni sem eru í fréttum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá