Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422367067.05

    Tölfræði, ályktunartölfræði
    STÆR3ÁT05
    90
    stærðfræði
    Tölfræði, ályktunartölfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er farið yfir undirstöðuatriði tölfræðinnar og talnagreiningar, svo sem normaldreifingu, t-dreifingu og kí-kvaðrat. Einnig er farið yfir dreifigreiningu (Anova), tilgátur og tilgátuprófun. Þá er fylgni og aðhvarfsdreifing könnuð og marktækni fylgnistuðla.
    STÆR2TL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tvíliðadreifingu, normlega dreifingu og t-dreifingu við útreikning líkinda
    • undirstöðuatriðum úrtaksfræða m.a. aðferðir til að reikna úrtaksdreifingu og nota hana við tölfræðilegar ályktanir
    • geta reiknað og túlkað fylgnistuðla og kannist við undirstöðuatriði línulegrar aðhvarfsgreiningar
    • nokkrum aðferðum til að kanna tengsl milli breyta, m.a. að nota kí-kvaðrat próf
    • notkun tölfræðiforritsins SPSS og að nota töflureikni við tölfræðilega útreikninga og úrvinnslu tölulegra upplýsinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota töflur við tölfræðilega útreikninga og úrvinnslu tölulegra upplýsinga
    • nota tölvur við lausn tölfræðilegra verkefna og framsetningu þeirra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilgreina lykilhugtök tölfræðinnar og nota gagnrýnin viðhorf til tölfræðilegra upplýsinga
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá