Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422456303.44

    Stjórnun, hugtök og kenningar
    STÓJ2HK05
    1
    stjórnun
    Hugtök og kenningar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni stjórnunar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á mikilvægi stjórnunar, fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild. Nemendur fá innsýn í helstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig breytingar í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á stjórnun sem fræðigrein. Nemendum er kynnt mikilvægi stefnumótunar og markmiðssetningar ásamt því að greina umhverfi stjórnunar. Viðfangsefni áfangans miðar meðal annars að því að undirbúa nemendur fyrir frekara nám í stjórnun, ásamt þátttöku í félags- og atvinnulífi. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda. Áhersla er lögð á raunhæf verkefni og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • helstu hlutverkum stjórnunar
    • • leiðtogahæfni
    • • sögu stjórnunar sem fræðigreinar og helstu fræðimönnum
    • • fyrirtækjamenningu
    • • siðferði skipulagsheilda
    • • samfélagslegri ábyrgð skipulagsheilda
    • • umhverfi skipulagsheilda
    • • breytingastjórnun
    • • stefnumótun, áætlanagerð og markmiðssetningu
    • • skipulagi fyrirtækja
    • • mannauðsstjórnun
    • • ráðningarferlinu
    • • þjálfun og umbun starfsmanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • beita grunnhugtökum stjórnunar við verkefnavinnu
    • • ræða helstu kenningar og aðferðir stjórnunar
    • • vinna raunhæf verkefni um stjórnendur í atvinnulífinu
    • • vinna saman í hóp
    • • koma þekkingu sinni á framfæri
    • • útbúa skipurit
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • beita hugtökum og aðferðum stjórnunar í starfi
    • • meta siðferðileg álitamál sem varða stjórnun
    • • heimfæra hugmyndir stjórnunar á eigið líf
    • • nýta sér hæfni sína til frekara náms
    • • nýta hæfni sína til þess að taka þátt í atvinnulífinu
    • • vinna raunhæf verkefni sem stjórnandi
    • • búa yfir færni í að skilgreina mismunandi stjórnunarstíla
    • • skilja helstu skipurit
    • • vera hæfari til að takast á við þá áskorun að taka virkan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar
    • • hafa það sem þarf til að bera til að bæta og efla atvinnulíf landsmanna í framtíðinni
    • • geta tekið einfaldar stjórnunarákvarðanir
    Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti verkefnum, skyndiprófi og ástundun nemandans á önninni.