Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422898361.66

    Bókfærsla 2
    BÓKF2DR05
    8
    bókfærsla
    Dagbók og reikningsjöfnuður
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Kunnátta nemenda á bókhaldi er dýpkuð með flóknari færslum og kynningu á nýjum reikningum. Farið er yfir bókanir sem varða innflutning, tollafgreiðslu, greiðslu virðisaukaskatts í tolli, kostnað og fyrirkomulag við geymslu á vörum í tollvörugeymslu. Einnig er farið yfir færslur í launabókhaldi. Uppgjörsfærslum er haldið áfram, bæði í gegnum aðalbók og reikningsjöfnuð. Kenndar eru bókanir í sambandi við stofnun og slit fyrirtækja, breytingar á réttarformi, samruna og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.
    BÓKF1DH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim lögum sem í gildi eru um toll og virðisaukaskatt
    • lögum um tekju- og eignaskatt einstaklinga
    • helstu innflutningskjölum vegna tollafgreiðslu og virðisaukaskatts
    • færslu launabókhalds varðandi skil á staðgreiðsluskatti, framlgi í lífeyrissjóð og félagsgjald.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • færa færslur vegna innflutnings
    • færa færslur vegna verðbréfaviðskipta
    • færa færslur vegna stofnunar og slita fyrirtækja
    • færa færslur vegna launagreiðslna og geta reiknað afdregna staðgreiðslu, félagsgjald og gjöld í lífeyrissjóð
    • færa færslur sem eru tengdar hlutabréfaeign, arði, gengisbreytingum og jöfnunarhlutabréfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leysa af hendi færslu á bókhaldi í litlu fyrirtæki
    • gera sér grein fyrir afkomu fyrirtækis. Hvort er hagnaður eða tap
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun skólans.