Áfanginn er valáfangi sem einkum er ætlaður nemendum sem hafa áhuga á lestri íslenskra bókmennta. Megináhersla er lögð á upplifun og skilning, að nemendur lesi sér til ánægju. Hver nemandi velur sér sex verk af bókalista eða í samráði við kennara. Að loknum lestri hvers verks gerir nemandi kennara grein fyrir því sem hún/hann hefur lesið.
Yndislestur I - ÍSLE3CY03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
á ólíkum tegundum skáldverka frá ólíkum tímum.
Nemandi þarf að þekkja helstu aðferðir höfunda við persónusköpun, byggingu og stíl skáldverka.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að beita helstu hugtökum bókmenntafræðinnar í umræðu um einkenni og form bókmennta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að segja frá lestrarupplifun sinni með skipulegum hætti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á mikilvægi bókmennta, bæði fyrir einstakling og samfélag.
Nemandi þarf að geta miðlað til annarra hugmyndum sínum um þýðingu og mikilvægi bókmenntanna.
Nemandi geti nýtt lestrarreynslu sína til að öðlast skilning á ólíkum menningarheimum og aðstæðum fólks í ólíkum samfélögum.
Námsmat fer fram í einkaviðtölum milli kennara og nemanda um hvert bókmenntaverk sem lesið er.