Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1422969876.46

    Spænska D, fjórði áfangi
    SPÆN2SD05
    5
    spænska
    fjórði áfangi, hlustun, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Haldið verður áfram þaðan sem frá var horfið í áfanganum á undan. Lokið verður yfirferð allra helstu grundvallaratriða spænskrar málfræði. Nemendur verða áfram æfðir í hlustun og ritun og meiri áhersla verður lögð á lesskilning. Nemendur munu rita texta sem tengjast efni áfangans. Lesnar verða smásögur og verkefni verða unnin. Orðaforði, tal og hlustun eru þjálfuð með því að lesa léttlestrarbók, hlusta á efni á á kennsluvefnum moodle og þjálfa færni í tali. Við námið er notast við hljóðglærur, myndskeið, talað mál og tónlist, internetið, gagnvirkar æfingar og gagnvirk próf. Áfanginn er á hæfniþrepi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    Spæn1SC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • • helstu grundvallarþáttum í uppbyggingu málkerfisins
    • • ýmsum almennum aðstæðum í daglegu lífi, menningu og siðum á Spáni og í Rómönsku Ameríku og í öðrum spænskumælandi löndum
    • • útbreiðslu spænskunnar ásamt ólíkum venjum, siðum, staðháttum og menningu spænskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • skilja talað mál um kunnugleg efni og greina aðalatriði í fjöl- og myndmiðlum þegar fjallað er um afmörkuð málefni
    • • lesa margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • • taka þátt í og tjá sig í samræðum um fyrirfram ákveðið efni sem hann hefur þekkingu og áhuga á
    • • skrifa styttri samfellda texta um efni sem hann þekkir, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir og nota viðeigandi málfar
    • • nota upplýsingatækni og hjálpargögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega um efni sem hann þekkir
    • • eiga frumkvæði í samræðum og geta tekið þátt í skoðanaskiptum í málefnum sem hann þekkir
    • • meta eigið vinnuframlag og annarra
    • • miðla eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
    • • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd eða blaðagrein
    • • skilja daglegt mál svo framarlega sem það tengist efni sem nemandinn þekkir
    Í lok áfangans er skriflegt og munnlegt próf sem gildir á móti ýmis konar vinnu; greinaskrifum, örsögum, stuttmyndum og leikritum. Í lok hvers kafla munu nemendur gera gagnvirkar æfingar á kennsluvefnum Moodle og úr vinnubók. Skriflega lokaprófið samanstendur af: ritun, lesskilningi, málfræði- og orðaforðaæfingum.