1.Jafnlínuteikning. Frumformin teiknuð í þrívídd og skyggð. Síðan eru teiknuð fleiri form í þrívídd, tekið út úr og bætt við og skyggt.
2.Fríhendisteikning. Hlutateikning eftir fyrirmyndum. 3.Fjarvídd. Undirstöðuatriði fjarvíddar; Gerðar eru æfingar og tveggja- og þriggja hvarfpunkta myndir teiknaðar. 4.Modelteikning. Æfingar og þjálfun í að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum. 5.Teikniæfingar hvers kyns. 6.Skissubókarvinna. Nemendur fá ákveðin heimaverkefni og rannsóknarverkefni sem þeir eiga að leysa í skissubók og vinna líka frjálsa myndsköpun.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að skoða hluti og umhverfi í þrívídd og fjarvídd.
að kynna sér listir og menningu í nútímanum og í mannkynssögunni..
hvernig hægt er að yfirfæra þekkingu sína og leikni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
teikna form og hluti í þrívídd.
að beita blýanti til að ná fram fjölbreytileik í línu og skyggingu.
að beita aðferðum jafnlínuteikningar.
•að horfa og teikna.
vinna sjálfstætt í rannsóknarvinnu tengdri myndlist.
að teikna mannslíkamann í réttum hlutföllum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á myndrænan hátt.
efla athygli og gagnrýna hugsun.
efla frumkvæði og sköpun.
njóta listar og menningar.
Í kennslustundum er símat í gangi í formi samtals við nemendur meðan þeir vinna. Áfanginn skiptist í nokkrar lotur og er heppilegast að meta í lok hverrar lotu. Kennarinn tekur vinnubækurnar 2-4 sinnum á önn til að fara yfir heimaverkefni, nokkur stærri menningarverkefni og aðra frjálsa myndsköpun nemenda. Áfanginn skiptist í nokkrar lotur/þætti sem metnar eru hver fyrir sig. Sjálfsmat og kennaramat. Síðast fá nemendur sundurliðað einkunnablað þar sem vinna vetrarins, verkefni og skissubók hafa verið metin til einkunnar í tölustöfum á kvarðanum frá 1-10.