Nemendur sem hafa lokið verknámi koma vikulega saman í skóla samhliða annarri starfsþjálfun. Þar eru rædd málefni sem tengjast starfi heilsunuddara. Nemandinn ræðir reynslu sína af starfsþjáfunartímanum og lærir af reynslu hinna í hópnum. Í upphafi gerir nemandinn áætlun varðandi starfsþjálfunartímann, að hverju sé stefnt og leiðir að því marki, og heldur síðan ferilbók. Farið er í vettvangsheimsókn á nuddstofu eða heilbrigðisstofnun.
Verklegir áfangar, MAVE3SÞ02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim verkefnum sem bíða heilsunuddara í starfi á nuddstofum
ýmsum vandamálum sem skjólstæðingar koma með til úrlausnar hjá heilsunuddara
starfskenningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
bregðast markvisst við vandamálum sem skjólstæðingar koma með til heilsunuddara
útskýra starfskenningu sína
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna margbreytileg störf á nuddstofum
skapa sér sinn eigin starfsvettvang í heilsunuddi
ástunda dyggðir í starfi sínu, s.s. stundvísi, sanngirni, heiðarleika og áreiðanleika