Í þessum byrjunaráfanga í dönsku er áhersla lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari
texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér orðaforða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og
riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum
að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Lesnir eru fjölbreyttir textar, bæði
bókmenntatextar og sérhæfðari og flóknari textar en áður, en einnig unnið með lestur eftir
áhugasviði nemenda. Lögð er áhersla á að nemendur beri ábyrgð á eigin námsframvindu og séu meðvitaðir um mismunandi aðferðir til að tileinka sér tungumál. Áhersla er lögð á
sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem danska er notuð sem móðurmál eða fyrsta mál
þverfaglegum orðaforða til undirbúnings og markvissrar notkunar í námi
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál
lesa margs konar gerðir texta, ekki síst fræðitexta og taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig skýrt, munnlega og skriflega um málefni sem hann hefur kynnt sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna sem hann þekkir vel til
tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
átta sig á dýpri merkingu í texta
taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og eiga frumkvæði í samræðum
tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt við margs konar aðstæður
skrifa læsilegan texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
skrifað margs konar texta og fylgt þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig