Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423492612.84

    Þjóðhagfræði
    ÞJÓÐ3OH05
    1
    þjóðhagfræði
    Opið hagkerfi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru skoðuð viðskipti milli þjóða og hagkvæmni þeirra. Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir á vörur og þjónustu. Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum. Einblínt er á hvaða áhrifaþættir koma við sögu þegar breytingar verða í heildareftirspurninni og heildarframboðinu og kenningar tengdar því. Þá verður farið í hvaða áhrif það hefur á hagkerfi þegar stjórnvöld beita aðferðum hagstjórnar, þ.e. fjármálastefnu eða peningamálstefnu innan hagkerfa. Kenningar og líkön verða skoðuð í tengslum við þessi viðfangsefni. Þá er einnig til umfjöllunar í áfanganum alþjóðlegar stofnanir og hlutverk þeirra. Sérstaklega verða skoðaðar þær stofnanir sem tengjast íslensku efnahagslífi á einn eða annan hátt. Kennsla í áfanganum fer fram með fyrirlestrum og verkefnavinnu.
    ÞJÓÐ2HK05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • mikilvægi viðskipta milli landa og áhrifum þeirra á hagkerfi
    • • áhrifum tolla á innflutning
    • • hvernig framboðs- og eftirspurnaferlar breytast við hinar ýmsu aðstæður í hagkerfum
    • • beitingu peningamálastefnu og fjármálastefnu í hagkerfum
    • • hvernig alþjóðastofnanir starfa og helstu hlutverk þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • greina efnahagsástand mismunandi hagkerfa
    • • notast við líkön til að útskýra hagfræðileg málefni
    • • finna upplýsingar og túlka þær
    • • greina breytingar í hagkerfum út frá tölulegum upplýsingum
    • • tjá sig um hagfræðileg málefni í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • tjá sig munnlega og skriflega á fræðilegan hátt um efnahagshorfur hagkerfa
    • • beita hagfræðikenningum á raunveruleg viðfangsefni
    • • leita upplýsinga um hin ýmsu hagkerfi á netinu
    • • taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni
    • • greina og túlka aðstæður á fræðilegan hátt
    Próf og verkefnavinna.