Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423579559.33

    Efnafræði
    EFNA2AE05
    15
    efnafræði
    almenn efnafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Hefðbundin kennsla fer fram í kennslutímum, þar sem hvatt er til umræðu og fyrirspurna eftir því sem tilefni gefast til. Mikil áhersla er lögð á dæmareikning. Auk þessa eru verklegar æfingar í raungreinastofu. Í raungreinastofu er tölvubúnaður sem gerir nemendum kleift að skrá niðurstöður og vinna verkefni úr tilrauninni. Nemendum er ætlað að tileinka sér og öðlast skilning á efni kennslutexta og viðbótarefni sem fram kemur í kennslustundum.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • efnum og efnabreytingum
    • • efnaformúlum og nafngiftum efna
    • • tölu Avogadros, móli, atómmassa, mólmassa
    • • efnahvörfum og efnajöfnum
    • • eiginleikum vatnslausna
    • • helstu flokkum efnahvarfa í vatnslausn
    • • mólstyrk og hlutfallareikningum
    • • gaslögmálunum og kjörgasjöfnunni
    • • helstu umgengnisreglum og öryggisatriðum í tilraunastofu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • gefa efnasamböndum nafn og rita formúlur þeirra
    • • beita mólhugtakinu í dæmareikningi
    • • skrifa og stilla efnajöfnur
    • • leysa hlutfallareikning samkvæmt stilltum efnajöfnum
    • • vinna að magnbundnum útreikningum
    • • beita gaslögmálunum og kjörgasjöfnunni
    • • framkvæma einfaldar verklegar æfingar í tilraunastofu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • beita skipulegum aðferðum við úrlausn dæma
    • • túlka orðadæmi, setja upp jöfnur og leysa þær með viðeigandi mælieiningum
    • • beita gagnrýninni hugsun og sýna innsæi og útsjónarsemi við lausnir verkefna
    • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær í rituðu máli
    Lokapróf, annarpróf, verklegar æfingar, heimadæmi.