Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Gaslögmálið, orka og jafnvægi
gaslögmálið, hraði efnahvarfa, orka í efnahvörfum
Í áfanganum er farið í gaslögmálið, orku í efnahvörfum, hraða efnahvarfa og jafnvægislíkinguna.
EFNA2AM05 eða sambærilegur áfangi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- • gaslögmálunum
- • orku í efnahvörfum, innri orku og hvarfavarma
- • hraða og jafnvægi í efnahvörfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- • nota gaslögmálin við útreikninga
- • reikna orku í efnahvörfum með lögmáli Hess og myndunarvarma
- • greina á milli tengjagerða innan sameinda og milli sameinda
- • finna hraðalögmál út frá tilraunaniðurstöðu og nota jöfnu Arrheniusar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- • nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
- • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- • setja niðurstöður úr verklegum æfingum fram á skýran hátt
- • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi