Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1423848284.72

    Fag- og örverufræði kjöiðnar og bakara
    FÖFM1FB04
    2
    Fag- og örverufræði matvælagreina
    Fag- og örveirufræði kjötiðnar og bakara
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í áfanganum er fjallað um færniþætti matvælagreina í bóklegri kennslu. Nemendur kynnast straumum og stefnum í matvælagreinum og vinnsluaðferðum í hverri grein. Þeir kynnast siðum og venjum og þeim kröfum sem gerðar eru um rétt vinnubrögð í matvælagreinum. Nemendur fá kennslu í því að fylgja leiðbeiningum, t.d. uppskriftum o.fl. er tengjast störfum í matvælagreinum, svo og faglegum vinnubrögðum. Fjallað er um innra eftirlit, HACCP. Þá fá nemendur fræðslu um mikilvægi þess að halda vinnusvæði og búnaði hreinum. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma og ábyrgð matvælaframleiðenda í því samhengi. Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Nemendur læra að gera hreinlætisáætlanir og eru þjálfaðir í að fylgja þeim eftir, ásamt því að kunna skil á helstu hreinsi- og sótthreinsiefnum.
    FÖFM1FA04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi starfa í matvælagreinum og þýðingu þeirra fyrir samfélagið
    • þeim færniþáttum sem viðhafðir eru við mismunandi störf í matvælagreinum
    • faglega réttum vinnubrögðum og mikilvægi þeirra við störf í matvælagreinum
    • því að fylgja fyrirmælum, uppskriftum og fleiri leiðbeiningum á réttan hátt
    • að kunna það helsta sem máli skiptir varðandi persónulegt og almennt hreinlæti á vinnustað
    • skilji hreinsiáætlanir HACCP og geti fylgt slíkum áætlunum eftir
    • að kynnast eiginleikum helstu ræstiefna og þekki notkun þeirra
    • að öðlast skilning á mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu
    • ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum sem og að koma í veg fyrir matarsjúkdóma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í matvælagreinum eftir fyrirfram ákveðnum verkferlum á faglegan hátt
    • vinna eftir uppskrift og fylgja leiðbeiningum
    • viðhafa gott persónulegt hreinlæti
    • þrífa tæki, áhöld og umhverfi samkvæmt reglum um þrif í matvælafyrirtækjum
    • nota algengustu ræsti og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar
    • vinna samkvæmt hreinlætisáætlunum og útbúa þær
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • takast á við mismunandi störf í matvælagreinum og unnið við þau undir handleiðslu iðnmeistara eða tilsjónarmanns
    • fylgja viðurkenndum starfsaðferðum sem notaðar eru við störf í matvælagreinum og þeim hefðum sem farið er eftir
    • vinna skv. uppskriftum og leiðbeiningum frá viðkomandi yfirmanni/starfsmanni hverju sinni
    • vinna með hreinlætisáætlanir skv. gæðakerfi HACCP
    • ganga af öryggi um vinnusvæði með tilliti til hreinlætiskrafna út frá öryggi viðskiptavinarins
    • forðast matarsýkingar við störf sín
    Verkefni og próf.