Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1424550769.47

    Bókmenntasaga 1550-1900
    ÍSLE3LF05(CT)
    58
    íslenska
    bókmenntasaga 1550-1900, lærdómsöld, raunsæi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    CT
    Bókmenntir og bókmenntasaga tímabilsins 1550-1900 er viðfangsefni þessa áfanga. Nemendur kynnast helstu straumum og stefnum á tímabilinu og lesa skáldverk sem tengjast því. Lögð er áhersla á tengsl samfélags og bókmennta. Nemendur lesa ljóð og laust mál og fara ítarlega í bragfræði. Þeir vinna fjölbreytt skrifleg og munnleg verkefni.
    10 einingar í íslensku á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum í bragfræði.
    • stefnum og straumum í bókmenntum á tímabilinu.
    • ritgerðasmíð og heimildavinnu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • túlka ljóð og lýsa þeim með bragfræðihugtökum.
    • lýsa einkennum texta og tengja þá við stefnur á tímabilinu.
    • vinna með öðrum nemendum í hóp að lausn ýmiss konar verkefna.
    • meta eigið vinnuframlag sem og annarra.
    • flytja fyrirlestra, lýsingar og kynningar í tengslum við námsefnið.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið í ræðu og riti.
    • setja fram skoðanir sínar í ræðu og riti og rökstyðja þær.
    • velja sér viðfangsefni og kjósa viðeigandi framsetningarmáta fyrir það.