Áhersla er lögð á þekkingu nemenda á skólaumhverfinu. Fjallað er um vinnubrögð í námi, sjálfsmynd, skólakerfi og atvinnulíf, fjármál, neytendamál, umferðina, lýðræði og borgaralega vitund. Einnig er fjallað um næringu, mataræði, geðheilsu, kynhegðun og vanabindandi efni.
Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, markmiðssetningu og úrvinnslu verkefna með kynningum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
námskröfum skólans og skólaumhverfinu
námsmöguleikum og skólakerfinu
árangursríkum námsaðferðum og mikilvægi markmiða
leiðum til að efla sjálfsmyndina
atvinnulífi og framtíðarstarfi
helstu fjármálahugtökum
lýðheilsu
lýðræði, Alþingi og stjórnmálaflokkum
jafnrétti
réttindum og ábyrgð neytenda
ábyrgð í umferðinni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita sér upplýsinga um helstu þætti í skólaumhverfinu
leita upplýsinga um námsmöguleika og skólakerfið
leita upplýsinga um árangursríkar námsaðferðir og setja sér raunhæf markmið
greina tengsl sjálfsmyndar við árangur í daglegu lífi
afla sér upplýsinga um atvinnulífið og framtíðar starfsmöguleika
leita leiða til að gera áætlun um fjármál og meta upplýsingar um fjármál
afla sér upplýsinga um lýðheilsu
leita upplýsinga um störf Alþingis, stjórnmálaflokka og lýðræði
fjalla um jafnréttismál
leita upplýsinga um rétt neytenda út frá lögum, siðferði og auglýsingum
sýna ábyrga hegðun í umferðinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
efla eigin styrkleika, sýna og vinna að því að þeir nýtist sem best í skólaumhverfinu
setja sér raunhæf markmið sem tengjast námi og starfi og gera grein fyrir eigin áhugasviði
nota árangursríkar námsaðferðir
útbúa starfsferilskrá og gera grein fyrir eigin möguleikum á atvinnu og frekara námi
taka ábyrgð á eigin námi og framtíð
vera fjármálalæs, búa til áætlun um fjármálin og reikna út helstu kostnaðarliði einstaklinga og fjölskyldu og hvað felst í því að vera fjárráða
greina hættur í umferðinni til að vera ábyrgur ökumaður
geta útskýrt lýðræðishugtakið og hvernig Alþingi og stjórnmálaflokkar starfa
tjá skoðanir sínar um þau málefni sem upp koma í samfélaginu hverju sinni
greina munnlega og skriflega frá upplýsingum sem hann hefur aflað sér