Í þessum upprifjunaráfanga er fjallað um talnareikning, talnalínuna, rétthyrnt hnitakerfi, prósentu- og vaxtarreikning og flatarmálsfræði.
Helstu efnisatriði:
• Heilar tölur, tugabrot, almenn brot
• Lausn einfaldra dæma á talnalínu, hnit punkta, láréttar og lóðréttar línur, speglun, hliðrun, snúningur
• Prósentur (tugabrot og almenn brot), álagning og afsláttur, vaxtareikningur
• Marghyrningar og hringir, mæling horna með gráðuboga, metrakerfið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðum talnareiknings
uppbyggingu rétthyrnds hnitakerfis
einföldum prósentu- og vaxtareikningi
flatarmáli og ummáli ferhyrninga og þríhyrninga
mælingu hornamælingu horna
metrakerfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna með heilum tölum og brotum
vinna með rétthyrnt hnitakerfi
reikna einfaldar prósentur og vexti
reikna flatarmál og ummál rétthyrninga og þríhyrninga
mæla horn
breyta einingum í metrakerfinu
nota vasareikni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt
útskýra hugmyndir sínar og verk
fylgja fyrirmælum sem gefin eru
lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum
• beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu