Flekakenningin og komið inn á þau gögn sem styðja hana. Kynntar og þjálfaðar eru aðferðir til að finna staðsetningu og stærð jarðskjálfta. Helstu aðferðir og tækninýjungar til að reyna að spá fyrir um stóra jarðskjálfta eru einnig reifaðar ásamt kynningu á jarðskjálftatækni til að kortleggja það sem er undir yfirborðinu. Fjallað er um mismunandi gerðir kviku, bergraðirnar þrjár, djúpbergsmyndanir, mismunandi hraungerðir, flokkun bergs, eldstöðvakerfi, helstu gerðir eldgosa, móbergsmyndanir, dyngjur, jarðvarmasvæði og jarðvarmaleit. Unnið er með jarðfræðikort og þætti í staðfræði Íslands sem viðkoma jarðfræði. Fjallað er um jökla, ár og vötn ásamt útrænum öflum almennt og komið inn á jarðsögu Íslands. Nemandi vinnur sjálfstætt og í hópum að lausn verkefna. Áhersla er lögð á tengingu við umhverfi og reynsluheim nemenda.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
flekakenningunni og mismunandi áhrifum eftir gerð flekamarka
því helsta sem notað er til að spá fyrir um stóra jarðskálfta
mismuninum á frumstæðri og þroskaðri kviku
hvernig megineldstöðvarsvæði er frábrugðið öðrum svæðum
hvernig yfirfæra megi þekkinguna um bergraðirnar þrjár út fyrir gosbeltin
helstu djúpbergsmyndunum og þekkja nokkur dæmi
myndun móbergsfjalla ásamt dyngjumyndun
hvernig ytri öflin móta umhverfið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna gróft fjarlægð jarðskjálfta út frá jarðskjálftalínuriti
staðsetja flekamörk, gosbelti, þverbrotabelti og möttulstrók landsins
greina helstu bergtegundir storkubergs
skoða mismunandi móbergsmyndanir
skoða áhrif vatns á goshegðun og myndun gosefna
skoða bergganga ásamt flestum öðrum djúbergsmyndunum
áætla stærð og staðsetningu jarðskjálfta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð við lausn verkefna
afla heimilda, meta þær og nýta í hagnýtum tilgangi
greina, út frá útliti fjalla, megineldstöðvar og almenna uppstöflun basalthrauna
tengja og meta halla jarðlaga við útkulnuð og virk flekaskil
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
tengja jarðfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
nýta námsefni og gögn á markvissan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.