Stefnt er að aukinni færni nemandans í hlustun, tali, lestri og ritun. Áhersla er lögð á aukinn orðaforða, málfræði og skilning. Viðfangsefni eru m.a. tengd daglegu lífi, frítíma, ferðalögum og liðnum atburðum.
5 feiningar í frönsku á 1. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu reglum um framburð
orðaforða sem tengist daglegum athöfnum og samskiptum
helstu atriðum franskrar málfræði og málnotkunar
ýmsum helstu þáttum í menningu frönskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita málsniði við hæfi og viðeigandi málfræðireglum
lesa og skilja einfalda texta
skilja talað mál um kunnulegt efni þegar talað er skýrt
tjá sig í ræðu og riti um daglegar athafnir sínar bæði í nútíð og þátíð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
eiga einföld samskipti á frönsku og beita viðeigandi málsniði í samskiptum
greina einfaldar upplýsingar um kunnugleg efni bæði í töluðu og rituðu máli